




LÚXUS ÍBÚÐ | 4 SVEFNHERBERGI
Lúxus íbúðirnar okkar eru mjög rúmgóðar (200 fm) fjögurra svefnherbergja glæsihýsi. Í þeim er stórt baðherbergi með bæði sturtu og baðkari, sem og gestasalerni. Setu- og borðstofa með arni, stórt fullbúið eldhús og sjónvarpshorn. Umhverfis allt er stór verönd og á henni prívat heitur pottur og gasgrill. Íbúðirnar eru smekklega innréttaðar í sveitastíl. Þar er hátt til lofts og vítt til veggja. Stórir gluggarnir gera rýmið bjart og falleg náttúran fær að njóta sín til fulls.
Íbúðin
- Stærð: 200 fm
- Svefnpláss: Allt að 7 gestir
- Baðherbergi: Með sturtu og baðkari og gesta salerni
- Morgunverður: Innifalinn
- Bílastæði: Tvö stæði án aukagjalds fyrir framan húsið
Þægindi
- Setu- og borðstofa með fallegu útsýni
- Fullbúið eldhús
- Einkaverönd með grilli og heitum potti
Sloppar
- Sjónvarpshorn
- Frítt wi-fi
- Mini bar
- Kaffi/te í íbúðinni
Verð
- 145.000 kr. hver nótt fyrir allt að 5 gesti.
Fyrir hvern gest umfram fimm er greitt:
29.000 kr. fyrir fullorðinn
14.500 kr. fyrir barn (6-11 ára)
Ókeypis fyrir börn yngri en 6 ára.
Morgunverðarhlaðborð innifalið.
Uppfærslur
Það er hægt að panta ýmislegt aukalega hjá okkur, til dæmis:
- Vínflaska
- Blóm í herberginu
- Súkkulaðihúðuð jarðarber í herberginu o.fl.
HEITIR POTTAR OG VERÖND
FRÁBÆRT ÚTSÝNI
Hótel Grímsborgir er staðsett í Grímsnesi á Suðurlandi á bökkum Sogsins, vatnsmestu bergvatnsá Íslands. Hótelið er á glæsilegum stað í kjarrivöxnu landi og frá hótelinu er fögur fjallasýn m.a. að Ingólfsfjalli og Búrfelli.

UMSAGNIR VIÐSKIPTAVINA OKKAR – Umsagnir frá TripAdvisor
From minute 1 they made us feel welcome and personally showed us to our rooms. Over a delicious dinner the staff greeted us and were happy to answer any questions we had about activities and the local area.
Laura J
The experience is definitely unique and charming. Their service is of top quality in every aspect and it always comes with a genuine smile. The rooms are very nice, clean and modern. They are more like condos than hotel rooms with plenty of hot tubs for everyone.
Shant K
Ekki missa af rómantísku- og lúxustilboðunum okkar!
*Þessi tilboð gilda frá 1. september – 22. desember og frá 5. janúar – 31. maí.
HÓTEL GRÍMSBORGIR